Góðar fréttir!!
Ég komst inn í sjúkraþjálfarann!!! ótrúlegt en satt!!
Var alveg farin að plana aðrar leiðir og orðin mjög sátt með þau plön... en NEI!´
ég fékk bréf í gær um það að ég hafði öðlast rétt á að læra sjúkraþjálfun og var í 12. sæti


25 komust inn þannig að ég get sagt að ég sé mjöööööög sátt núna

Mér finnst mjög óþæginlegt að Palli er útá sjó núna og ekki í símasambandi.. ég er ekki enþá búin að geta sagt honum fréttirnar......hefði viljað getað sagt honum þetta fyrst.. en meilið verður að duga núa...
Í dag er ég er stödd á Patreksfirði

Gísli og Egill eru að halda uppá 25 ára afmælið sitt
Ævar kom og sótti mig samt í gær til að halda uppá árangurinn

Við áttum yndislegt kvöld í gamla góða Fagranesi með Rósu, Emblu Maríu og þrem fökkum

sem eru búnir að bjóða mér til Parísar.. ræðum það ekki meir

Í dag fór ég í heimsókn til ömmu. Mér fanst rosalega gott að sjá hana, og gaman að sjá hana svona spræka! er ekki búin að sjá hana í tæpa 2 mánuði núna!
Eftir heimsóknina fór ég í ratleik með unga liðinu sem kallar sig Show Girls og Verstfirsku Mafíuna. Ég var í fjólubláa liðinu

Við vorum seinust í mark... en við unnum samt keppnina!!! við vorum að vanda okkur svo mikið við búninga gerð, myndatökur og fleira

Eftir ratleikinn fór ég í líka þetta flotta afmæli hjá strákunum (Gísla og Agli) sem var haldið á Þorpinu. Nánast eins og brúðkaup! tjald, matur, bjór og trúbadorar allt svakalega flott

skemmti mér konunglega... en ég er nú samt komin heim núna.. get ekki sagt annað en ég sakna hans Palla míns... eins og ég er að reyna að leika hana Polly Önnu núna og segja að allt sé frábært

svo stend ég sjálfa mig að því að vera komin heim að blogga og borða Doritos!!!
Eftir helgi þá kem ég með myndir af herlegheitunum..
Hafið það gott dúllurnar mínar ég veit að ég mun gera það
Knús og kossar
Komandi sjúkraþjáfari
María Kristín